Tuesday, March 3, 2009

Laufey mín er farin...

Jæja það var því miður ekkert alvöru djamm á okkur Laufey.

Það mætti halda að það hefði verið mjög leiðinlegt já okkur miðað við hvað við gerðum asnalega hluti! En það var bara svo gaman hjá okkur að við gleymdum að djamma! og kannksi vegna þess að hún var hjá mér mán, þri og mið nætur:)
en ég tók bara mynd af Laufey þegar hún var að fara og þær eru heima og ég í skólanum þannig að ég ræni þessum bara frá Laufey
Hér erum við útiteknar og sætar í miðjum hjólatúr í leit að gömlu barnfóstrunni hennar Laufeyjar:) hún fannst ekki enda vorum við að leita á röngum stað en við fengum allavega að finna þessa líka fínu skítafýlu í staðinn og minnka á okkur rassgatið um alltaf og mikið :D
Hér er svo eina djamm myndin af okkur! Þarna er ég með merktu krúsina mín við hönd og Laufey fékk bara venjulega. En næst þegar Laufey kemur þá verður bæði barnfóstran fundin og Laufey vinnur sér inn merkta krús! Það á líka við um ykkur öll hin sem eigið eftir að koma og fá krús ;)

Jæja hér er fyllerísmynd af okkur Auði í staðin:) þessi er stolin af henni Berglindi sem var ein af 4 sem bauð okkur í innflutningspartý í 200 fm íbúðina sína! Auður var e-ð leiðinlega full þannig að ég reyndi að drepa hana, hún fór því snemma heim því hún átti erfitt með andadrátt ;) ykkur er velkomið að nota þetta bragð ef þið viljið!

e.s. ef ykkur finnst ég e-ð léleg að blogga þá vil ég bara benda á hvað fólk er lélegt að komment og hana nú!

5 comments:

Harpa Rún said...

Æji ég varð alveg veik þegar þú sendir emailið um flugið... Mig langar svoo að koma!! :(

Hlakka síðan til að sjá fleiri myndir af ykkur stöllum... sá á hjólamyndunum að þú ert komin í hörkuhljólaform hahah! Sá þig alveg fyrir mér þeysast þarna um göturnar með laufey í eftirdragi ;) (no affance laufey)

Og já þegar ég kem einn góðan veðurdag ætla ég klárlega að fá nafnið mitt á bjórkrús!! :D

Anonymous said...

Hæ ég kíkji alltaf á bloggið :) þó ég hitti þig ansi oft :) svo núna er ég búin að kommenta :)

Anonymous said...

haha það alveg skín af þér umhyggjan þegar þú ert að reyna að kirkja auði ;)

og já ég varð alveg veik þegar ég fékk emailið um flugið.......

kv.sandra

Anonymous said...

Það væri nú alveg geggjað að kíkja í danskinn. :) Hver veit!!!!
kveðja Kolla og strákarnir :)

Laufey Sif said...

Hehe comment comment ;)
Ofsalega dugleg!