Thursday, March 11, 2010

Öryggið á oddinn!

Nú í sept eru það 2 ár síðan ég keypti hjólið mitt fína :) og þar af leiðandi er ég búin að ætla kaupa mér hjálm í næstum 2 ár :S
Úrvalið af hjálmum er rosalegt! Mig langar samt í e-n bjánalega töff hjálm en þeir eru bara oft svo dýrir :( þetta er til í öllum gerðum og litum og ég hef fundið myndir af uppáhladshjálmunum mínum :)
Hér erum við að tala um hjálm hjálmanna ég held það sé ekkert sem getur komið fyrir hausinn á manni ef maður er með þennan! Svo kæmist ég á urrandi siglingu um alla Odense því hann er svo straumlínu laga :)Ennþá betra væri það ef ég fengi mér svona spandex galla ;)
Þessi væri mjög góður í sumar þegar alla moskító flugurnar eru á sveimi og minni hætta á að éta þær og fá þær í augun :(
Svo er hægt að fá sér svona hatta sem maður bætir á hjálmana :) þá getur maður alltaf verið að skipta um lit eftir skapi ;)
Hér er hins vegar hjálmurinn sem ég mun örugglega fá mér :) finnst hann hallærislega töff ;)

Nafn mitt er hreinlega á þessum! ég hef bara aldrei séð hann nema á netinu svo ég efast um að ég geti keypt hann, annars myndi ég borga frekar marga peninga fyrir hann :)

Kinder hjálmurinn fer allavega á langa óskalistann minn svo ef þið eruð e-n tíman að spá í að gefa mér gjöf þá er þetta eitt af því sem myndi gleðja mitt litla hjarta afskaplega mikið :D

3 comments:

Beta kokkur said...

Mér finnst þessi fyrsti flottastur :) sérstaklega þegar þegar tour de france byrjar :)

leyndur aðdáandi..Sandra said...

plís nennirðu að kaupa þennan fyrsta og hjóla svona út með tunguna..

BettýWettýOneFoot said...

ok bara fyrir þig leyndi aðdáandi ;) ég verð þá að fá mér gallann líka! öðruvísi gengur dæmið ekki upp!