Sunday, October 5, 2008

,,It's raining men halelúja!"

Ef þessi rigning heldur áfram þá gæti ég átt það á hættunni að komast í kjörþyngd!
Málið er að ég hjóla eins og brjálaðingur í þessari rigningu og tek fram úr öllum eins og ég hafi ekki gert annað alla ævi! þessir spinning tímar hjá Rakel og Einsa eru loksins að skila sér;)

Annars er ég á fullu að reyna finna mér e-ð til að sofa á, þá get ég flutt í herbergið mitt...
búin að fara núna tvisvar að reyna hitta á þennan herbergisfélaga en nei hann er greinilega aldrei heima!

Keypti lottómiða í fyrsta skipti á ævinni í gær af því að mig dreymdi svo mikinn mannaskít en ég vann ekki neitt! fékk mest 3 réttar og maður á að vera með 4 réttar til að vinna 46 kr og miðinn kostar 40 kr. þessi mannaskítsdraumur hefur greinilega bara verið skíta lánið mitt frá bankanum sem ég fékk greitt daginn eftir drauminn mikla!

að lokum vil ég benda ykkur á að Anna kemur eftir 6 daga :D

3 comments:

Anonymous said...

Við höldum svo svaka partý hér á laugardaginn...það verður svaka stuð...sérstaklega fyrir nágranna minn ;)

Unknown said...

Haha, ég las nú að þú værir á fullu að leita þér aðeinhverju til að sofa "hjá".. ekkert að því samt!

Gangi þér vel í Danó:)

Anonymous said...

bíddu nú við.. hahah eiga svona komment heima á fjölskulduvænni bloggsíðu! :D