Tuesday, December 8, 2009

Allt er gott sem endar vel...

Þá hefur mín nokkurn veginn tekið gleði sína á ný :)

Eftir þrjár tilraunir við að panta nýjan síma og númer þá heppnaðist það :D vesenið var allt útaf því að nafnið mitt er að hluta til skráð með íslenskum stöfum!

Ég var margbúin að finna fullkomin símanúmer og það síðasta var 28 96 69 36, prófiði bara að stimpla það inn :( ég náði náttúrulega ekki þessu númeri og endaði með að fá 42 36 66 87 (munið 0045 á undan þegar þið hringið frá Íslandi ;) )
Annars er ekki fyndið hvað ég nota símann minn lítið! Ég sem nota síma endalaust þegar ég er á Íslandi þá liggur við að inneignin mín renni út áður en ég næ að nota hana hér úti :S
Svo var ég líka búin að vera pirrast yfir því að eitt prófið mitt í janúar var fært og ég búin að kaupa mér miða til Íslands þegar það á að vera :(
En af því að þessar bjánar þurftu að breyta þessu þá tók ég þá ákvörðun að skrópa bara fyrstu vikuna til að geta verið lengur heima og hefna mín á þeim :) og nú!
Þannig að ég kem heim 19. janúar og fer aftur út 7. febrúar :D það eru næstum því 3 vikur af eintómri gleði og hamingju ;)
En talandi um djamm þá fór ég á jólahlaðborð með bekknum síðasta föstudag. Það var alls kyns óspennandi í matinn og allir aðeins og fullir! Ég dansaði tilneydd við einn bekkjarbróðir minn sem var síðan borinn út eins og kartöflupoki rétt á eftir :) það var eftir að hann datt á matarborðið og fékk yfir sig megnið af matnum sem eftir var :S ég þurfti þá allavega ekki að dansa meir við hann :)

Hér erum við Stephanie hressar og kátar :) spurning um að e-r á þessari mynd ætti að fara skella sér í ljós svona áður en hún verður glær!

Venlig hilsen Mjallhvít ;)

2 comments:

Laufey Sif said...

Beta. ég veit að þú ert mega fan of Twilight og Edward Cullen en hvað er í gangi með hvítuna. Hef áhyggjur af þér.

BettýWettýOneFoot said...

ég er að þessu fyrir þig því ég veit hvað þú ert heit fyrir honum ;) everything i do i do it for you!