Wednesday, December 9, 2009

Stundum eru kveikt ljós en engin heima!

Það eru nú ótrúlegustu hlutir sem mér tekst að gera og margt sem augun mín hafa gengið í gegn um :) gleimi því seint þegar ég skvetti 90% vodkablöndunni hennar Hörpu í augun á mér á leiðinni á ball!




En í dag var ég að verða of sein í skólann og er að slökkva á öllum kertunum þegar ég blæs af svo miklum krafti í eitt þeirra að það skvettist yfir allt andlitið á mér og í hárið á mér!
Ég fékk meira að segja kertavax í augum og augnhárin voru vel útötuð! Þetta var ekkert vont nema í stutta stund og reyndar bara mjög fyndið þegar ég var búin að náð þessu úr augunum á mér :D


Síðan var ég mjög svekkt yfir því að hafa ekki fattað það fyrr en eftir á að taka mynd af mér með slettunum í andlitinu :) en svona er það þegar maður er að drífa sig!



Í staðin er hér mynd af því þegar ég fékk pinkeye ið rétt áður en ég flutti út :) það var rosalegt en ég ansi góð í að fela það þetta kvöld þó svo að mér hafi tekist að smita hana Önnu litlu með því :S þessi mynd er náttúrulega bara æðisleg af okkur öllum ;)

En þetta var nú ekki það eina sem kom fyrir þar sem ég var á leiðinni heim úr skólanum og er að fara yfir götuna hjá skólanum þá klessti ég á svona lítinn breiðann staur hinum megin við götuna :)
Ég var að hjóla alveg lúser hægt því það kemur svona hjólahraðahindrun þegar maður kemur yfir götuna og tekst e-n veginn að beygja þegar ég ætlaði mér að fara beint áfram! það hljóta að hafa verið e-r æðri öfl að verki því ég skil ekki hvernig þetta gerðist!
það var ekki nema einn strákur sem sá þetta og ég er nokkuð viss um að hann eigi eftir að lifa lengi á þessari athöfn minni :) eina sem ég gat sagt var úpsí hehe og roðnað niðrí tær :)

Dagur í lífi Elísabetar :D

4 comments:

Unknown said...

hahahah! vá hvað þetta er fyndið!! :D

vodki og kertavax í augun... þú ert ansi sjóuð í þessu elskan!

og vá hvað ég hefði örugglega dáið úr hlátri ef ég hefði séð þig klessa á staurinn haha! Yndislegir svona dagar... ;) og farðu svo varlega framvegis á jóla-kerta tímanum!

Thorunn Gud nagranni said...

En hvernig forstu ad thessu? Varstu ekki ad blasa a kertid? Mætti halda ad thu hafir verid ad sjuga kertid ad ther.

Beta said...

Tíhihihi Beta klaufi :)

BettýWettýOneFoot said...

tja hvað get ég sagt :) mér er margt til listanna lagt ;)